Ethan Nadelmann á Íslandi í boði Snarrótarinnar

8. — 12. maí, 2014

Ethan Nadelmann, framkvæmdastjóri bandarísku mannréttindasamtakanna The Drug Policy Alliance, heimsótti Ísland 8. til 12. maí í boði Snarrótarinnar, samtaka um borgaraleg réttindi.

Nadelmann ræddi við fjölmiðla um fíknistríðið og það böl sem það hefur leitt yfir heiminn. Hann átti mjög góða fundi með Velferðarnefnd Alþingis, heilbrigðisráðherra, landlækni og embættismönnum innan heilbrigðiskerfisins.

Ethan ræddi einnig við áhugamenn um afnám útskúfunar- og refsihyggju í fíkniefnamálum, þvert á hið pólitíska litróf; pírata, frjálshyggjumenn og skaðaminnkunarfólk, auk félaga í Snarrótinni.

Ethan Nadelmann flutti opinberan fyrirlestur í Háskóla Íslands, Þáttaskil í stríðinu gegn fíkniefnum?, en fyrirlesturinn var samvinnuverkefni Félags- og mannvísindadeildar Háskóla Íslands og Snarrótarinnar.

Fundurinn var vel sóttur og gestir gerðu góðan róm að máli Nadelmann.

Heimsókn Ethan Nadelmann markar að ýmsu leyti þáttaskil í umræðunni um fíknivarnir á Íslandi.

Tengslanet hans er með ólíkindum og það eflir starf Snarrótarinnar að tengjast því, auk annarra umbótahreyfinga sem Snarrótin hafði þegar tengst.

Snarrótin – samtök um borgaraleg réttindi, er orðin órjúfanlegur hluti þeirrar öflugu heimshreyfingar sem krefst þess að fíknistríðinu ljúki, en virðing fyrir mannréttindum og lýðheilsumarkmiðum leysi hugmyndafræðilegar grillur um veröld án fíkniefna af hólmi.

Neðar á síðunni eru tenglar á fyrirlestur Nadelmann, viðtöl á Stöð 2 og í Speglinum hjá RÚV, og grein af MBL.is um fyrirlesturinn.

Auk þess eru nokkrar myndir úr heimsókninni hér fyrir neðan. Sumar myndirnar eru teknar á farsíma í kvöldrökkri á Skólavörðuholti og biðst Snarrótin afsökunar, fyrir hönd Apple Inc, á slökum myndgæðum.

Skýringar við heilsíðumyndirnar að neðan > 1) Ethan ræðir við Jóhannes Stefánsson, lögfræðing, og Halldór Auðar Svansson, kaptein pírata í Reykjavík. 2) Þór Gíslason, forstöðumaður Frú Ragnheiðar, skaðaminnkunarverkefnis RRKÍ segir Ethan fréttir af götunni 3) Ólafur Skorrdal ráðgjafi, Júlía Birgisdóttir gjaldkeri og Björgvin Mýrdal aðalritari ræða stöðuna eftir aðalfund Snarrótarinnar 2014.

ETHAN NADELMANN: Þáttaskil í stríðinu gegn fíkniefnum?

Félags- og mannvísindadeild HÍ í samvinnu við Snarrótina

Fundarstjóri: Stefán Hrafn Jónsson dósent í félagsfræði við Háskóla Íslands.

Ethan Nadelmann er doktor í stjórnmálafræði frá Harvard og með meistaragráðu í alþjóðasamskiptum frá London School of Economics.

Hann hefur kennt við Princeton háskóla, skrifað bækurnar Cops Across Borders og Policing the Globe, og birt fjölda greina í virtum fagtímaritum á borð við Science, International Organization, Foreign Affairs, Foreign Policy og Public Interest.

Nadelmann hefur sömuleiðis komið fram í öllum helstu fréttamiðlum Bandaríkjanna og víðar.

Nadelmann er einn þekktasti baráttumaður heims gegn bann- og refsihyggju í fíkniefnamálum og gjarnan kallaður heilinn á bak við þann glæsilega árangur sem náðst hefur í Bandaríkjunum að undanförnu, nú síðast í Colorado og Washington.

island-i-dag

ÍSLAND Í DAG: Ísland á kolrangri braut í fíkniefnamálum

Heimir Már ræðir við Ethan Nadelmann

„Mér skilst að á Íslandi, og það er aðdáunarvert við samfélag ykkar, er þessi hefð fyrir umbyrðarlyndi og andstaða við að setja fólk í fangelsi og svipta það frelsi sínu. En svo virðist vera þessi undantekning hvað ólögleg vímuefni varðar,“ segir Ethan Nadelmann.

„Þið sendið hunda inn í sali til að leita á ungu fólki og kennið þeim að þau séu álitin sek þangað til sakleysi þeirra er sannað. Þið merkið fólk fyrir lífstíð sem gerir því erfitt að fá vinnu, eða ferðast til Bandaríkjanna eða fá húsnæði eða þess háttar.“

Ethan segist skynja að á Íslandi ríki umburðarleysi hvað varði kannabis eða önnur fíkniefni sem sé svæsnara en í hans landi og í mótsögn við hefð Íslendinga fyrir umburðarlyndi.

„Hvernig hagnast þjóðfélagið á því að láta ungmenni á sakaskrá fyrir það eitt að eiga og nota jónu? Ég sé engan ávinning. Þegar um mann er að ræða sem er háður fíkniefni í hvítu duftformi. Hvernig græðir samfélagið á því að koma fram við hann sem glæpamann og neyða hann til að nota skítugar nálar, neyða hann út á göturnar í stað þess að líta á hann sem mann með fíkn sem þarfnist hjálpar?“

spegilinn

SPEGILLINN: Bann- og refsistefna virkar ekki

Jón Guðni Kristjánsson ræðir við Ethan

,,Það sem ég berst fyrir,” segir dr. Ethan Nadelmann, ,,er að neysla vímuefna eins og maríúana verði refsilaus. Það verði settur ákveðinn rammi varðandi neyslu og sölu þessara efna eins og gert með áfengi.”

,,Lönd okkar hafa reynslu af bannstefnu í áfengismálum og við vitum að hún kom ekki í veg fyrir áfengisneyslu,” segir Nadelmann. Afleiðingin varð glæpaalda og í Bandaríkjunum ofbeldisalda, bannstefna olli virðingarleysi fyrir lögum, hræsni og kaldhæðni.

Hún gerði áfengið hættulegra en ella vegna þess að það var framleitt ólöglega og eftirlitslaust. Allar sömu röksemdir eiga við um kannabis. Refsingar eins og að setja fólk á sakaskrá fyrir neyslu kannabiss valda því meiri skaða en neyslan sjálf. Og eldra fólk sem einhvern tíma hefur neytt kannabiss þorir ekki að ræða það hreinskilnislega við börn sín, það verður til hræsni og feluleikur.

Nadelmann er sannfræður um að hugsanlegir ávinningar af bann- og refsistefnu verði ætíð minni en reglusetning um neysluna og segir nauðsynlegt að læra af reynslu ríkja sem hafa slakað á bannstefnunni eins og Hollands og Portúgals.

mbl.is

MBL.IS: Flestir nota vímuefni skynsamlega

Morgunblaðið um fyrirlestur Ethans

Ethan Nadelmann er doktor í stjórn­mála­fræði frá Har­vard og með meist­ara­gráðu í alþjóðasam­skipt­um frá London School of Economics.

Í starfi sínu sem fram­kvæmda­stjóri The Drug Policy Alli­ance hef­ur hann komið að stefnu­mót­un vegna lög­leiðing­ar maríú­ana í nokkr­um ríkj­um Banda­ríkj­anna og í Úrúg­væ.

Þá hef­ur hann unnið fyr­ir inn­an­rík­is­ráðuneyti Banda­ríkj­anna og gert rann­sókn­ir á fíkni­efna­mál­um, lög­gæslu í tengsl­um við fíkni­efna­brot og áhrif á sam­fé­lagið.

Aðspurður um það hvernig hann sæi stöðu Íslands í þess­um efn­um sagði Nadelmann að það væri al­gjör­lega óá­sætt­an­legt að í lýðræðis­ríki eins og Íslandi hefði fólk ekki aðgang að maríú­ana í lækn­is­leg­um til­gangi.

Þá taldi hann að refs­i­stefn­an hér væri of ströng og nefndi dæmi um að hér væri auðveld­ara að taka börn af for­eldr­um sem neyttu kanna­bis­efna en væru að öðru leyti góðir for­eldr­ar, en af þeim sem ættu við áfeng­is­vanda að stríða og gengju jafn­vel fram með of­beldi við börn­in.

Hann sagði aft­ur á móti að það heillaði sig hversu fáir væru í raun hand­tekn­ir hér vegna neyslu og að það benti til þess að menn teldu neysl­una ekki jafn refsi­verða og lög­in bentu til.

Hræsni á Íslandi

Að lok­um sagði hann að miðað við það sem hann hefði heyrt væri umræða um vímu­efni kom­in mjög stutt á leið hér á landi. Þannig hefði ekki mikið verið rætt um neyslu þing­manna eða hátt settra ein­stak­linga í þjóðfé­lag­inu. Á sama tíma væri nokkuð al­menn umræða um fyrr­um neyslu þing­manna í Banda­ríkj­un­um og þar væri það ekk­ert laun­ung­ar­mál.

Sagði Nadelmann að í ljósi þess að allt að 40% Íslend­inga hefðu prufað maríú­ana, sam­kvæmt könn­un­um, þá væri ljóst að hluti þing­manna, stjórn­enda fyr­ir­tækja o.fl. hefðu neytt fíkni­efna eða væru neyt­end­ur í dag. Það fæl­ist því ákveðin hræsni í því að ekki væri meira fjallað um mál­efnið á hrein­skiln­um nót­um.

Oddi 101 Fíkniefnamál

ethan-iceland

Ethan í útsýnisferð um Suðurland. Hér er hann staddur við Kerið í Grímsnesi. Ethan heimsótti einnig Geysi, Gullfoss, Brúarhlöð og Flúðir.

Svipmyndir frá heimsókn Ethan Nadelmann á Íslandi

 
 

9) Pétur Þorsteinsson, Sigurfreyr, Ethan og Ólafur Skorrdal ráðgjafi Snarrótarinnar.   10) Ethan og Þorsteinn Úlfar í útsýnisferð um Suðurland.  11-12) Útsýnisferðin.

Myndasyrpan

1) Ethan Nadelmann og Pétur Þorsteinsson formaður Snarrótarinnar ræða málin.

2 og 3) Fyrirlestur Ethans  í Háskóla Íslands.

4) Stefán Hrafn Jónsson, lektor í félagsfræði og fundarstjóri.

5) Arnaldur Sigurðarson, Jónas Orri, Björgvin Mýrdal og Júlía Birgisdóttir á rabbfundi með Ethan í Perlunni.

6) Ethan Nadelmann, Þór Gíslason, Guðmundur Ragnar Guðmundsson og Elín G. Gunnarsdóttir ræða málin í Perlunni.

7) Ethan og Sigurfreyr Jónasson vefstjóri Snarrótarinnar eru brosmildir eftir góðan kvöldverð.

8) Ethan og Björgvin Mýrdal, ritari Snarrótarinnar.

Snarrótin og réttindamál

Snarrótin — Samtök um borgaraleg réttindi er félag áhugamanna um opið samfélag, mannréttindi, upplýsingafrelsi og nýjar leiðir í fíknivörnum. Markmið félagsins er verja borgaraleg réttindi og friðhelgi einkalífs.

Lögvæðing og regluverk

Snarrótin hafnar refsistefnu bannhyggjunnar. Hún styður fulla lögvæðingu kannabismarkaðarins og að skatttekjum af kannabisverslun verði varið til stuðnings barna, ungs fólks og fíknisjúkra.

Ókeypis fyrirlestrar

Snarrótin hefur enga fasta tekjustofna. Það er stefna félagsins að allir fyrirlestrar á hennar vegum séu ókeypis og öllum opnir. Allt söfnunarfé rennur óskipt til verkefna á vegum Snarrótarinnar.

Frjáls framlög almennings

Snarrótin fjármagnar starfsemi sína með frjálsum framlögum frá almenningi. Öll vinna í þágu Snarrótarinnar er sjálfboðastarf. Snarrótin rekur ekki skrifstofu, greiðir engin laun og hefur enga yfirbyggingu.

Viltu styrkja Snarrótina til góðra verka?

Okkur vantar alls konar liðveislu; fjárframlög, aðstoð við þýðingar, myndbandagerð og ýmislegt fleira

Hafa samband