Snarrótin – samtök um skaðaminnkun og mannréttindi er félag áhugafólks um opið samfélag, upplýsingafrelsi og nýjar leiðir í fíknivörnum. Allt frá stofnun árið 2012 hefur félagið unnið fyrst og fremst að því að efla mannréttindamiðaða umræðu um vímuefnamál og gagnrýna ríkjandi bannstefnu. Við byggjum á gagnreyndum aðferðum og leitumst við að varpa ljósi á hvað hefur sýnt sig að virkar, og virkar ekki, til að draga úr skaðsemi vímuefna án þess að brjóta gegn réttindum einstaklinga.
Stjórn Snarrótarinnar, kosin til tveggja ára á aðalfundi 1. mars 2019:
- Lilja Sif Þorsteinsdóttir, formaður
- Halldór Auðar Svansson, gjaldkeri
- Sigrún Jóhannsdóttir, ritari
- Halla Kolbeinsdóttir, samskiptabakhjarl
- Gígja Skúladóttir
Varamenn
- Darri Eyþórsson,
- Björgvin Mýrdal,
- Ásta Sif Árnadóttir