Prófessor David Nutt er breskur vísindamaður og sérfræðingur um vímuefnamál. Hann hefur getið sér gott orð fyrir miskunnarlausa gagnrýni á hræðsluáróður og rangfærslur stjórnmálamanna og fjölmiðla í vímuefnamálum, en einnig hlotið skrokkskjóður fyrir óþægilegan heiðarleika og hreinskilni, ekki síst vegna greina sem hann skrifaði um hættur af völdum ýmissa vímuefna.

Prófessor Nutt dvaldist á Íslandi í boði Snarrótarinnar frá 13. til 17. september 2014 og flutti opinberan fyrirlestur um vímuefnamál og vímuefnastefnu. Að fyrirlestri loknum voru pallborðsumræður. Fyrirlesturinn var samstarfsverkefni Félags- og mannvísindadeildar Háskóla Íslands og Snarrótarinnar – samtaka um borgaraleg réttindi. Dr. Helgi Gunnlaugsson, prófessor, var fundarstjóri.

Prófessor David Nutt hefur birt rúmlega fjögur hundruð rannsóknargreinar í viðurkennd fagtímarit, álíka fjölda umsagna og bókakafla, fjölda opinberra greinargerða um lyf og vímuefni og alls tuttugu og sex bækur.
Hann benti á að reiðmennska að breskum hætti veldur samfélaginu ívið meiri háska en MDMA (svonefnd e-tafla). Hann sýndi fram á að löglegu fíkniefnin, áfengi og tóbak, eru miklu hættulegri en kannabis og raunar flest ólögleg vímuefni.

Í stuttu máli sýndi hann fram á að flokkunarkerfi vímuefna, sem bresk löggjöf byggist á, er mestan part hjávísindi og stenst ekki fræðilega gagnrýni. Fyrir það var hann rekinn úr starfi aðalráðgjafa bresku ríkisstjórnarinnar í vímuefnamálum.

Prófessor Nutt er nýkjörinn forseti Evrópska heilarannsóknaráðsins (European Brain Council), prófessor í tauga- og geðlyfjafræði og formaður geðlyfjafræðihóps við rannsóknardeild Imperial College í London.

Hann er forseti Óháðu vísindanefndarinnar um vímuefni (ISCD), forseti Evrópuháskólans í taugageðlyfjafræði (ECNP) og nýkjörinn forseti Sambands breskra taugavísindamanna, svo fátt eitt sé nefnt af trúnaðarstöðum hans á vísindasviðinu, innan Bretlands og í alþjóðlegu samstarfi. Að auki hefur hann ritstýrt tímaritinu The Journal of Psychopharmacology í rúman áratug.

David Nutt hefur birt rúmlega 400 rannsóknargreinar, álíka fjölda umsagna og bókakafla, átta álits- og greinargerðir um lyf og fíkniefni og tuttugu og sex bækur. Sú síðasta, Drugs Without the Hot Air, er góð kynning á störfum hans og hugmyndum. Árið 2010 taldi tímaritið Times Eureka David Nutt á meðal hundrað áhrifamestu einstaklingana í bresku vísindasamfélagi.

Fyrirlestur David Nutt

Dr. David Nutt