Oddi, stofa 101, Háskóli Íslands föstudaginn 9. maí kl. 12.00

Ethan Nadelmann er doktor í stjórnmálafræði frá Harvard og með meistaragráðu í alþjóðasamskiptum frá London School of Economics. Hann hefur kennt við Princeton háskóla, skrifað bækurnar Cops Across Borders og Policing the Globe, og birt fjölda greina í virtum fagtímaritum á borð við Science, International Organization, Foreign Affairs, Foreign Policy og Public Interest. Nadelmann hefur sömuleiðis komið fram í öllum helstu fréttamiðlum Bandaríkjanna og víðar. Nadelmann er einn þekktasti baráttumaður heims gegn bann- og refsihyggju í fíkniefnamálum og gjarnan kallaður heilinn á bak við þær breytingar sem orðið hafa í Bandaríkjunum að undanförnu, nú síðast í Washington og Colorado. Nadelmann hefur beitt sér fyrir umbótum á réttarvörslukerfi Bandaríkjanna og er auk þess mikilvægur ráðgjafi í hinni alþjóðlegu hreyfingu gegn núverandi stefnu í fíkniefnamálum. Nadelmann og samtök hans eru virkir þátttakendur í umræðunni í Mið- og Suður-Ameríku, m.a. í Urúgvæ, sem nýlega lögvæddi kannabismarkaðinn að fullu.

Háskóli Íslands, Oddi Sturlugötu 3, 101 Reykjavík


Viltu styrkja Snarrótina til góðra verka?

Okkur vantar alls konar liðveislu; fjárframlög, aðstoð við þýðingar, myndbandagerð og fleira

Hafa samband