Snarrótin - Markmið og leiðir
Snarrótin – samtök um skaðaminnkun og mannréttindi er félag áhugafólks um opið samfélag, upplýsingafrelsi og nýjar leiðir í fíknivörnum.
Markmið félagsins er að efla umræðu um brýn samfélagsmál og leita leiða til úrbóta.
Markmiðum sínum hyggst félagið ná með því að:
- bjóða til landsins framúrskarandi sérfræðingum
- krefja opinberar stofnanir um upplýsingar og gögn
- birta reglulega frétta- og fræðsluefni á vef félagsins og Facebooksíðu
- skrifa greinar og vera virkt í samfélagsumræðu
Félagið er óháð stjórnmálaflokkum og hagsmunaaðilum en hefur öflug og virk tengsl við baráttusamtök og áhrifafólk í fræðasamfélaginu um allan heim.
Baráttan gegn bannhyggju í fíkniefnamálum hefur haft forgang á fyrsta starfsári félagsins.
- Snarrótin hafnar sjónarhorni bannhyggjunnar. Snarrótin styður lögvæðingu markaðar með öll vímuefni, samkvæmt skilvirku regluverki og í samvinnu við heilbrigðiskerfið, eftir því sem við á.
- Snarrótin styður lögvæðingu kannabismarkaðarins og að sköttum af kannabisverslun verði varið til stuðnings barna, ungs fólks og fíknisjúkra. Kannabismarkaðurinn verði skilinn frá verslun með áfengi og erfiðari vímuefni.
- Snarrótin styður rannsóknir og þróun kannabislyfja og ver rétt sjúklinga til að nota kannabis. Snarrótin fagnar rannsóknum á lækningagildi efna á borð við MDMA og LSD.
- Snarrótin minnir á þá tugi þúsunda íslenskra ungmenna sem misst hafa æru, starf og framtíðarhorfur vegna laganr. 65/1974 og leggur til að þau verði afnumin.