Snarrótin sendi inn umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um ávana- og fíkniefni, 23. mál á 150. löggjafarþingi 2019-2020.
Frumvarpið miðar að því að gera vörslu á neysluskömmtum vímuefna refsilausa.
Snarrótin fagnar frumvarpinu og styður að það verði að lögum en bendir þó á að mikilvægt sé að refsileysi vörslu nái einnig yfir lyfseðilskyld lyf.